1. Formaður setur fundinn og boðar kosningu fundarstjóra
og ritara fundarins.
2. Fundarstjóri kannar lögmæti fundarins og kynnir dagskrá
hans.
3. Formaður flytur skýrslu stjórnar.
4. Deildarformenn flytja skýrslu sinnar deildar. Jeppadeildin,
auto-x deildin, spyrnudeildin, fornbíla deildin og rc deildin.
5. Umræða um skýrslu stjórnar/deilda.
6. Lagabreytingar ef lagðar eru fram. Afgreiddar með
skriflegri kosningu.
Lög taka strax gildi hafi 2/3 hluti mættra fundarmanna
samþykkt.
7. Kosning stjórnar sbr. gr. 5. Skrifleg kosning ef þess þarf
og tilkynnt eftir kaffihlé.
8. Kaffihlé.
9. Kosning skoðunarmanna reikninga sbr. gr. 5. Kosning,
handaupprétting.
10. Kosning Formanns Landsvæðanefndar.
handaupprétting.
11. Kosning formanns Laga og aganefndar.
handaupprétting.
12. Ákvörðun um gjald félagsskirteina BA.
13. Önnur mál.
Aðalfundur er löglegur ef löglega er til hans boðað og mæting kjörgengra félagsmanna sé lágmark 15 manns auk allra 9 stjórnarmanna.