Laugardaginn 18. maí fer fram hin árlega fornbílaskoðun og Mótorhjólaskoðun Bílaklúbbsins og Tíunnar hjá Frumherja. Áætlað er að byrja þetta klukkan 08:00 og vera búin um 13:00.
Að sjálfsögðu verður fírað í Fordinum (grillið) og snarað í steikur handa mannskapnum. Engin skráning bara mæta. Bílarnir þurfa að vera fornbílar og eigendur þeirra þurfa að hafa BA skírteinið meðferðis 🙂 Mótorhjólin eru skoðuð með eðlilegum hætti.
Takið með ykkur góða skapið og gerum okkur glaðan dag 😊