Aðalfundur 5 febrúar 2022

Frestun aðalfundar
16. janúar, 2022
Félagsskírteini 2022
22. febrúar, 2022
Show all

Aðalfundur 5 febrúar 2022

Staðfest er að  Aðalfundur Bílaklúbbs Akureyrar verður haldinn laugardaginn 5. febrúar 2022 í félagsheimilinu okkar að Hlíðarfjallsvegi 13.
Fundur hefst klukkan 13:00 stundvíslega.

Dagskrá fundar:

1. Formaður setur fundinn og boðar kosningu fundarstjóra
og ritara fundarins.

2. Fundarstjóri kannar lögmæti fundarins og kynnir dagskrá
hans.

3. Formaður flytur skýrslu stjórnar.

4. Deildarformenn flytja skýrslu sinnar deildar. Jeppadeildin,
auto-x deildin, spyrnudeildin, fornbíla deildin og  rc deildin.

5. Umræða um skýrslu stjórnar/deilda.

6. Lagabreytingar ef lagðar eru fram. Afgreiddar með
skriflegri kosningu.

Lög taka strax gildi hafi 2/3 hluti mættra fundarmanna
samþykkt.

7. Kosning stjórnar sbr. gr. 5. Skrifleg kosning ef þess þarf
og tilkynnt eftir kaffihlé.

8. Kaffihlé.

9. Kosning skoðunarmanna reikninga sbr. gr. 5. Kosning,
handaupprétting.

10. Kosning formanns Laga og aganefndar.
handaupprétting.

11. Ákvörðun um gjald félagsskirteina BA.

12. Önnur mál.

Aðalfundur er löglegur ef löglega er til hans boðað og mæting kjörgengra félagsmanna sé lágmark 15 manns auk allra 9 stjórnarmanna.

 

Sjá má í viðhengi tillögur að lagabreytingum og framboð til stjórnar.

Stjórn og lagatillögum

 

Mbk. Stjórn Bílaklúbbs AKureyrar.

Comments are closed.