Um næstu helgi eða Laugardaginn 11. júlí verða haldnar tvær keppnir á svæðinu hjá okkur. Um er að ræða B. Jensen götuspyrnuna sem haldin verður klukkan 13:00 og síðar sama dag eða klukkan 20:00 verður haldin sandspyrna. Aðgangseyrir er 2.000 kr.- fyrir gesti og gangandi en frítt fyrir félagsmenn og börn yngri en 12 ára. Endilega allir að mæta og gera sér góðan dag með okkur. Munið tveggja metra viðmiðið 🙂
Skráning í götuspyrnuna má finna hér.
Skráning í sanspyrnuna má finna hér.