
Í gær, sunnudaginn 1. febrúar 2026, var haldinn aðalfundur BA með ágætismætingu. Fundurinn var vel sóttur og skemmtilegur, þar sem nýjir aðilar voru kosnir í stjórn.
Við viljum sérstaklega bjóða nýja stjórnar meðlimi velkomna, en svo lítur stjórnin út í dag:
Einnig viljum við kynna formenn deilda BA:
Við erum spennt fyrir því að vinna með nýju stjórninni og formönnum deildanna að framtíð BA og nýjum verkefnum.
Á sama tíma viljum við þakka þeim sem hafa hætt í stjórn fyrir þeirra ómetanlega starf og góðar stundir en það eru þau Jóna Jakobsdóttir, Sverrir Snær og Þórarinn Hrafn (Tóti) en þau hafa lagt mikið af mörkum og við erum þakklát fyrir þeirra framlag.
Við hlökkum til að sjá hvað framtíðin ber í skauti sér fyrir BA og nýju stjórnina!
Því miður náðist ekki mynd af nýrri stjórn eða af deildar formönnum.
Eins styttist í að sent verður í heimbanka rukkun fyrir félagsskirteini en verð er óbreytt frá því í fyrra. 9000 kr fyrir venjulegt félagsskirteini en 16000 fyrir gullkort. Sama fyrirkomulag eins og undan farin ár, þú greiðir kröfuna og leggur síðan inn auka 7000 kr inn á 0565-26-00580 kt. 6602800149 og setur í skýringu gull. Ef einhverjar spurningar vakna þá er minnsta mál að heyra í gjaldkeranum okkar en hún sér um kortin.