Bíladagar 2027.
Dagskrá, siðareglur, tjaldsvæði og allar helstu upplýsingar á einum stað.
Vefverslunin er lokuð eins og er.
Dagskrá Bíladaga 2027
16. júní
Drift
17. júní
Bílasýning í Boganum kl. 10:00–18:00
Hávaðakeppni
18. júní
Götuspyrna
Auto x
19. júní
Torfæra
Burn out
Spólsvæðið opnar 17. júní og verður opið frá 23:30 til 03:00.
Tjaldsvæðið opnar 15. júní kl. 18:00. nánari upplýsingar
Birt með fyrirvara um breytingar.
Siðareglur Bíladaga
- Við göngum og keyrum vel um bæinn okkar, jafnt gestir sem heimamenn.
- Virðum hámarkshraða í íbúðarhverfum sem og á vegum úti.
- Við spólum einungis á akstursíþróttasvæði Bílaklúbbs Akureyrar.
- Gestir Bíladaga eru jákvæðir og þar af leiðandi þrælskemmtilegir.
- Við berum virðingu fyrir náunganum og gerum Bíladaga frábæra.
- Gestir Bíladaga ganga snyrtilega um umhverfi sitt.
