Aðalfundur BA verður haldin 25. janúar 2025 kl. 13:00 stundvíslega í félagsheimilinu okkar að Hlíðarfjallsvegi 13 (staðsetning gæti breyst)
Hér að neðan má finna upplýsingar um lausar stöður innan stjórnar og deilda eins er linkur að lögum félagsins ef menn vilja senda inn tillögur að lagabreytingum félagsins.
Lausar stöður innan stjórnar.
Formaður kosin til 3ja ára
Gjaldkeri kosin til tveggja ára
Ritari kosin í 1 ár
Meðstjórnandi til tveggja ára.
Varamaður til tveggja ára.
Vakin er athygli á 5.gr laga 3. Stjórn er heimilt að skipta með sér verkum.
Til að geta gefið kost á sér í stjórn þarf viðkomandi að vera búin að greiða í félagið a.m.k. sl. 3 ár einning að hafa tekið þátt í keppnishaldi,
mætt á félagsfundi eða tekið þátt í starfi klúbbins á einhvernhátt.
Kosið er árlega um eftirfarandi stöður:
1. Jeppadeildarfomaður.
Deildin heldur Torfærukeppnir samkvæmt árlegu keppnisdagatali; skipuleggur ýmiskonar uppákomur svo sem sjáum heim vetrarferðir,
jeppaleikni og aðstoðar við öflun sýningatækja á bílasýningu.
2. Spyrnudeildarformaður.
Deildin sér um allar spyrnukeppnir samkvæmt árlegu keppnisdagatali.
Skipuleggur opin æfingarkvöld og aðstoðar við öflun sýningatækja á bílasýningu.
3.Sýningarnefnd. Sér um 17. júní bílasýninguna
4. Fornbíladeildarformaður.
Deildin sér um stjórnun og framkvæmd bílasýningarinnar 17 júni ár hvert. Deildin skal vera virk í að kynna fornbíla- og bílamenningu fyrir almenningi og hafa umsjón með uppgerð og varðveislu fornbíls í eigu BA.
5. X-Race Deildarformaður.
Deildin sér um auto x, burnout og drift keppnir samkvæmt dagatali og stendur einnig fyrir opnum æfingarkvöldum og
aðstoðar við öflun sýningatækja á bílasýningu.
6. Ungliðadeildarformaður.
Deildin stendur fyrir unglingastarfi innan félagsins og kemur á framfæri hugmyndum um námskeið og fræðslu varðandi, bíla, keppnir og keppnishald fyrir ungt og óreynt fólk.
7. RC deildarformaður.
Deildin sér um allslags hluti tengda RC bílum (Radio controlled cars) eða Fjarstýrðir bílar
8. Rallycross deildar formaður
Sér um að halda utan um rallycross og aðstoðar við öflun sýningartækja á bílasýningu.
9. Landsvæðanefnd.
Landsvæðanefnd hefur yfirumsjón með landssvæði BA ásamt félagsheimili og öðrum eignum BA. Nefndin hefur umsjón með og ber ábyrgð á því hverjum er veittur aðgangur að eignum félagsins. Nefndin ber ábyrgð á að eignir félagsins séu vel hirtar og ávalt til fyrirmyndar.
Nefndin skipuleggur og úthlutar tímum og lyklum að landsvæði og í félagsheimili til deilda og annarra sem hafa verkefni á vegum BA með höndum.
10. Laga- og aganefnd.
Nefndin er stjórn og deildum innan handa með lagalegar upplýsingar og ráðgjöf og getur tekið þátt í að leysa úr ágreiningi sem upp kann að koma innan félagsins.
Nefndin hefur aðgang að öllum gögnum félagsins sem hún telur nauðsynlegt við úrlausn mála sem hún hefur fengið umboð til að vinna.
Dagskrá fundar verður auglýst tveim vikum fyrir aðalfund.
Hafir þú áhuga á að sitja í stjórn BA eða vera formaður deilda þá þarf að tilgreina nafn, kennitölu og ef þú sækist um einhverja sérstaka stöðu í stjórn , og/eða ert með tillögur um lagabreytingar þarf það að berast viku fyrir aðalfund eða
í síðasta lagi kl: 12:59 þann 18. janúar 2025 á ba@ba.is
Stefnt er að því að halda upp á 50 ára afmælið okkar svo síðar um kvöldið þannig að endilega fylgist með. Auglýst verður um leið og allt er komið á hreint.
Linkur á lög og reglur félagsins.