Hér fyrir neðan er dagatal Bílaklúbbsins, þar sem búið er að merkja keppnir sem og annan viðburð sem er á vegum klúbbsins og eru þeir dagar fráteknar. Athugið að Bílaklúbburinn er einnig með ýmsa smærri viðburði sem og fundi því eru ekki endilegar allar dagsetningar utan þess lausar.
Salurinn getur tekið 40 – 50 manns í sæti. Hægt er að opna salinn út á pall. Og er hjólastólaaðgengi. Salurinn hentar vel fyrir fundi og smærri veislur eins og t.d. skírnarveislur og fermingar.
Aldurstakmörk eru á leigutaka salarins og skal hann ekki vera undir 25 ára. Og eru engar undantekningar teknar á því.
Leigutaki ber fulla ábyrgð á húsnæðinu og skemmdum sem þar kunna að verða einnig leyfir klúbburinn sér að rukka aukalega ef eitthvað er skemmt eða umgengni slæm. Skrifað er undir þar til gerðan samning þegar salurinn er tekinn á leigu.
Leigan er 45.000 kr með þrifum.
Ath: Hljóðkerfi fylgir ekki með í leigunni. En hægt er að leigja lítið hljóðkerfi hjá okkur á 10,000 kr.
Vinsamlegast hringið í
661-6152 vegna bókana.
email: brynjarnova@gmail.com