Bookmark and Share

Bílaklúbbur Akureyrar

Hér setur þú lýsinguna á vefnum

Fréttir

Prófanir hefjast í dag

Hér mjá sjá Schumacher ásamt hinum glænýja Mercedes MGP W01 í Valencia í morgun
Hér mjá sjá Schumacher ásamt hinum glænýja Mercedes MGP W01 í Valencia í morgun
Í dag hefjast prófanir Formúlu 1 liðanna fyrir komandi tímabil en allur akstur hefur nú verið bannaður frá lok síðasta móts. Mercedes, Ferrari, McLaren, Sauber, Williams, Toro Rosso og Renault hafa nú frumsýnt keppnisbíla ársins og munu önnur lið klára frumsýningar sýnar á næstu dögum.

Það fylgir fyrstu prufunum ávallt mikil spenna þar sem liðin hafa nú öll í skjóli vetrar reynt að galdra fram sem öflugastan bíl fyrir tímabilið ásamt því að nýjir ökumenn fá að keyra í nýjum heimkynnum eða með nýjum liðum. Þrátt fyrir flutning Fernando Alonso til Ferrari og Jenson Button til McLaren er óhætt að segja að flestir bíði spenntir eftir frumakstri Michael Schumacher á Mercedes-Benz.

Schumacher mun keyra á Valencia brautinni í dag ásamt liðsfélaga sínum og samlanda, Nico Roseberg. Aðeins einn keppnisbíll er tilbúinn hjá Benz og munu þeir því skiptast á að keyra bílinn í dag, Roseberg fyrir hádegi og Schumacher seinnipartinn.

Fréttir af reynsluakstri og frumsýningum formúluliðanna má fá á heimasíðunni Kappakstur.is



Mynd augnabliksins

Teljari

Í dag: 7
Samtals: 63883

Dagatal

« Mars 2010 »
SMÞMFFL
 123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28293031 

Könnun

Á Bílaklúbbur Akureyrar að opna opið - gjaldfrítt spjallsvæði?

Póstlistar

Deildin

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn