Ísakstur á Vetraríþróttarhátíð 2010 - FRESTAÐ
laugardagur 13.mars 2010 - Lestrar 243

Bílaklúbbur Akureyrar er eitt þeirra íþróttafélaga sem situr í undirbúningsnefnd Vetraríþróttarhátíðar 2010. Nú þegar hefur félagið nelgt laugardaginn 13. mars fyrir ísakstur svo áhugamönnum um þetta skemmtilega sport er óhætt að byrja að negla og gera sig klára.
Í umræðunni hefur einnig verið að bjóða uppá, ef þáttaka næst, sérstaka ísaksturskeppni á fjórhjólum og svo ísspyrnu sem keyrð yrði eftir sandspyrnuforminu. Við munum kynna þessa viðburði betur þegar nær dregur.
Hér er myndband af nokkrum Íslendingum að leik í Noregi - svona rétt til að minna á það hvað þetta er gaman!!

























