Útvegun varahluta er okkur fornbílaáhugamönnum hugleikið efni enda oft sem þarf að panta slíkan varning utan okkar yndislegu eyju. Stærstu
vöruhús og seljendur varahluta gefa flest út pöntunarlista sem þeir senda viðskiptavinum og í kvöld biðjum við menn að rífa með
sér pöntunarbæklingana sína og þá sér í lagi frá þeim fyrirtækjum sem þeir hafa verið að panta frá.
Þá er ætlunin að skiptast á reynslusögum varðandi þjónustu, verð og flutning og sjá þá t.d. hverjir smyrja og hverjir taka
í þurrt.
Í kvöld ætlum við svo einnig að ræða komandi aðalfund félagsins og fara yfir skipun forsvarsmanna deildarinnar ásamt fulltrúa hennar
í stjórn.
Húsið opnar að venju kl. 20:30.- heitt á könnunni og allir áhugamenn um fornbíla velkomnir.
Fornbíladeildin