Bookmark and Share

Bílaklúbbur Akureyrar

Hér setur þú lýsinguna á vefnum

Nýjustu fréttir

Ísakstur á Vetraríþróttarhátíð 2010 - FRESTAÐ


Þar sem þessa dagana er hitabylgja á Akureyri munum við þurfa að fresta áður auglýstri dagskrá varðandi ísakstur. Stjórn B.A. mun setjast aftur yfir málið eftir helgina, rýna í nýjustu veðurkort og sjá hvort finna megi þessum viðburði nýja dagsetningu.

Lesa meira

Árshátíð Kvartmíluklúbbsins


Kvartmíluklúbburinn mun halda árshátíð sína laugardaginn 3. apríl n.k. á Gamla Vínhúsinu (áður A. Hansen). Þar hefur félagið leigt sal og mun bjóða upp á þriggja rétta matseðill, skemmtiaðtriði ofl. Skráningin er hafin og stendur til 28. mars en skráning fer fram í tölvupósti á fridrikdan@simnet.is

Lesa meira

Opið hús - Fornbíladeild

Þessi hefur sést á götunum núna í blíðunni og aldrei að vita nema að hann láti sjá sig í kvöld?!
Minnum á opið hús hjá Fornbíladeildinni í kvöld. Opnum klukkan 20:30.- og bjóðum uppá kaffi og skemmtilegt spjall. Allir velkomnir!!

Fornbíladeildin

Starfsmaður óskast!!


Nú hefur Bílaklúbbur Akureyrar í samstarfi við Vinnumálastofnun náð samkomulagi um að ráða starfskraft í tengslum við keppnis- og félagsstarf félagsins. Starfið var auglýst á heimasíðu Vinnumálstofnunar og er stjórn félagsins að klára að fara yfir umsóknir þaðan um starfið þessa dagana.

Lesa meira

Úrslit úr Rally Spretti

Bifreið Páls Harðarsonar eftir óhapp hans í gær. Mynd fengin á vef AIFS
Ragnar Magnússon stóð uppi sem sigurvegari í Rally spretti helgarinnar en keppnin fór fram í Reykjavík í gær. Það voru 12 áhafnir sem hófu keppni í frekar erfiðu skyggni en slydda og snjókoma er búinn að vera á suðurlandi um helgina. Páll Harðarson varð fyrir því óláni að keyra á ruslagám eftir að hafa verið með örugga forystu nær allan tímann og endaði sá skellur með því að flytja þurfti aðstoðarökumann hans á sjúkrahús til aðhlynningar.

Lesa meira

Rally sprettur í dag


Í dag heldur BÍKR rally sprett sem er liður í bikarmeistaramóti félagsins. Spretturinn fer fram í Reykjavík og samkvæmt fregnum frá keppnishaldara er skráning með besta móti. Við hvetjum alla þá sem vilja eiga góðan dag að kíkja á sprettinn en staðsetningar á sérleiðum má finna hér.

Lesa meira

Lada í Formúlu 1

Formúlubíll Renault hér með Lödu merkið góða á síðunni
Áhangendum í Formúlu 1 á án efa eftir að fjölga í innsta kjarna B.A. eftir að þær fregnir bárust að LADA hefur nú hengt sig á Renault liðið. Renault liðið var að stærstum hluta selt í vetur þótt það veri enn merki frönsku bílasmiðjunnar og segja fróðir menn að þetta skref hjá LADA sé einungis byrjunin að rússnensku stórveldi í þessari efstu og mestu mótaröð akstursíþrótta.

Lesa meira

Þýskur Camaro?


Bíla- og íhlutafyrirtækið Magna sem vildi kaupa Opel í Þýskalandi en fékk ekki þegar GM hætti óvænt við að selja, varð hlutskarpast í útboði hjá GM um að framleiða íhluti í nýja opna útgáfu „retro“ (fortíðarútlítandi) sportbílsins Chevrolet Camaro.

Lesa meira

Allsherjarþing SÞ samþykkti umferðaröryggisáætlun FIA

Michelle Yeoh ein af talsmönnum FIA vegna þessa verkefnis sést hér með eiginmanni sínum Jean Todt - forseta FIA
Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna samþykkti í gær að helga áratuginn 2011-2020 baráttu gegn umferðarslysum í heiminum. Frumkvæði að þessari aðgerðaáætlun hafði  FIA, heimssamtök bifreiðaeigendafélaga og bílaíþrótta. Einkunnarorð aðgerðaáætlunarinnar er "Gerum vegina örugga" (Make Roads Safe). Framkvæmdastjóri átaksins er Lord Robertson fyrrum utanríkisráðherra Bretlands og síðar framkvæmdastjóri NATO. Meðal helstu talsmanna átaksins eru Michael Schumacher og kvikmyndaleikararnir Michelle Yeoh og Michael Palin.

Lesa meira

Topp tíu listinn í kvöld!

Murray Walker - fyrrum rödd Formúlunnar
Þar sem nú styttist óðum í að keppnistímabilið hefjist í Formúlu 1 þá ætlum við að sýna topp 10 lista Murrey Walker´s á fornbílakvöldi í kvöld. Murrey hefur oft verið nefndur "rödd formúlunnar" en hann var í rúmlega 50 ár einn helsti lýsandi formúlunnar í Bretlandi. Murrey, sem nú er sestur í helgan stein, hefur tekið saman  í skemmtilegt myndand topp tíu lista yfir sína uppáhaldsökumenn á löngum ferli, en þar gefur á að líta nöfn eins og Michael Schumacher, Nigel Mansell, Ayrton Senna, Niki Lauda ofl. ofl.

Lesa meira

Ísakstur - skráning


Skráning í Ísakstur er nú hafin og stendur til mánudagsins 08.03.2010. Skráning fer fram í tölvupósti á netfanginu gretar@ba.is
Það sem þarf að koma fram í skráningu er: nafn, kennitala, ökutæki, flokkur og akstursíþróttafélag. Þátttaka er auglýst í tveimur flokkum bifreiða, eindrifs og fjóhjóladrifsflokki. Allar nánari upplýsingar má fá í síma 893-6868.


Bílprófunum lokið - fyrsta keppni 14. mars


Í gær lauk formlegum bílprófunum Formúlu 1 liðanna á Barcelona brautinni á Spáni. Allar bílprófanir á milli keppna eru nú ólöglegar og verða keppnisliðin að láta sér duga æfingar á keppnisbrautum þær helgar sem keppnir fara þar fram. Samkvæmt lokatímum æfingarinnar í Barcelona þá má búast við gríðarlega spennandi ári því munur á fyrstu 12 bílunum var rétt rúmlega hálf sekúnda. Einhver lið eiga svo að venju uppfærslur á bílana klárar sem ekki er telft fram fyrr en í fyrstu keppni.
 
Lesa meira

Mynd augnabliksins

Teljari

Í dag: 17
Samtals: 63989

Dagatal

« Mars 2010 »
SMÞMFFL
 123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28293031 

Könnun

Á Bílaklúbbur Akureyrar að opna opið - gjaldfrítt spjallsvæði?

Póstlistar

Deildin

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn